Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

900 manna afmæli, Geirmundur spilaði og Inibjörg Solrún m´tti!!!!

Já eins og kom fram í lok síðustu færslu var komið að hinu árlega þorrablóti. Það var reyndar með breyttu sniði þetta áið, þar sem að central park (Miðgarður) er í breytingum og var ákveðið að hinir 4 fornu hreppar seylu,akra,lýtó og staðar hreppur skildu sameinast í eitt blót og þetta var alveg frábært blót, skemmti atriðin mjög góð og sköruðu þeir Óli á Grófargili og Siggi í Vík frammúr með hreint út sagt geggjuðu atriði. Fjöldasöngurinn var reyndar ekki alveg að heppnast en þetta var samt sem áður hið besta blót. Nú svo á miðnætti var nú komið að því að sjálfur 30 ára afmælisdagurinn rynni upp og var skálað í amarula já og fleiri góðum drykkjum. Geirmundur spilaði svo á ballinu og svo var sungið afmælissöngurinn og svo datt Geirmundi það í hug að kalla mig upp á svið þar sem að hann vildi vera viss um að allir vissu nú hver afmælisbarnið væri, eini gallinn sem ég svo sem sá var að það var dálítið hátt upp á sviðið en það var nú bara að láta sig vaða og hoppa og það klikkaði sem betur fer ekki.´ Ég og Alla vinkona tókum svo eftir því á borðhaldinu á Ingibjörg Sólrún var á svæðinu og þá kom uppfingin af fyrirsögninni, ég hafð nú reyndar ekki boðið henni formlega í afmælið hehe en allt í góðu samtenda var hún bara að tjútta og skemmta sér eins og allir hinir. Eftir blótið fór ég svo heim til Óskars og Öllu en gisti hjá þeim, Kristín og Þorgrím voru þar og var Snæbjört skvísa að passa þau, takk fyrir pössunina Snæbjört og takk takk allir hinir fyrir frábært blót.

framhald ferðasögu

jæja það er víst komin tími á að halda áfram með ferðasöguna, var reyndar að fatta að gleymdi á sunnudeginum að Ingiríður kom mú brunandi strax til að kíkja á okkur, en sam sagt að miðvikudeginum fórum við meðal annars í kaffi til Lillu frænku og það var frekar skondið að við vorum varla komnar inn um dyrnar þegar litla dýrið segir ég er voða svöng og mig langar í pönnukökur, (hmm veit ekki hvaðan hún hefur þetta sterka pönnukökulyktarskyn) en viti menn það reyndust nú líklega til ný steiktar pönnsur.

Fimmtudagur

var bara leti til að byrja með svo var faríð á Krókinn þar sem við mæðgur skelltum okkur í klippingu og svo fórum við með Öllu,Óskari og Þorgrími í sund og hittum þar Þóreyju,Ástu Lilju og Konna Kalla og Önnu og Söru Líf.  Það var heiljar mikið stuð að vanda í lauginni og svo var pizzu hittingur hjá Þórey og Gísla eftir sundið og þá bættust Gísli,Elli Hjartar og Eggert í hópinn þó svo að þeir hafi skrópað í sundið.  Svo um kvöldið var skipt yfir í saumó og þá bætist Sigurlaug í hópinn hja mer,Þórey,Öllu og Önnu en Bryndhildur komst ekki, en strákarnir voru allir sendir burtu, hehe enda ömurlegt að hafa þá í saumó ea hvað????

Föstudagur

Föstudagurinn fór að mestu í undirbúning fyrir afmælið og fórum við Kristin og hittum Guðmann frænda og hann hjálpði okkur að gera salin klárann og svo kom Alla og Lilla líka og svo strtaði afmælið um 18 og stóð fram á kvöld, það var rosa gaman að hitta alla og spjalla alla, kosturinn er að maður hittir margar en gallinn kanski sá að maður hefur ekkert rosa mikin tíma að spjalla þegar maður er svona á þeytingi milli fólks en allavega var ég ánægð með kvöldið og takk innilega fyrir komuna allir og takk fyrir gjafirnar.

Humór kvöldsins verður klárlega að skrifast á Sóleyju skvís, hún kom þegar líða tók á kvöldið en tók smá mannafel og kom aftan að Ingiríði og ætlaði að fara faðma hana þegar hún fattaði að þetta var ekki ég, þetta var bara snilld á sjá svipin á þeim báðum haha, Sóley sá sem sagt bara baksvip á rauðhærði stelpu með sítt hár, ég hef nú ekki breyst svona mikið á þessum mánuðum eða hvað?? eða erum við kanski bara meira líkar en við heldum Ingiríður ???

Jói,Eva,Kristinn, pabbi og mamma og Kristín Björg hjálpuðu mér svo að ganga frá salnum, ja litla party ljónið hafðu sko haft vit á því að sofa fram á hadegi og leggja sig svo aftur um 3:30 til að hafa orku í partyið.

Laugardagur

Sofið út svona eins og alla hina dagana, á maður ekki að gera það í frí annars???

Svo komu Lilla og Hjördís og við frænkurnar ásamt pabba gerðum þorramatinn kláran og skelltum í trogin og svo var bara farið að vinna í að gera sig klár fyrir blótið.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband