Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Versló 2008!!

Já verslunnarmannahelgin er bara búin þetta árið og var  bara þræl skemmtileg.  Á föstudaginn skelltum ég,Guðrún, Árni Gísli og Sigga okkur til Akureyrar í verslunarferð.  Byrjuðum í mjólkurbúðinni þar sem við Guðrún vorum heppnar að því leyti að það var enginn röð þegar við fórum inn en þegar við komum út hins vegar var massa mikil biðröð.  Guðrún ætlaði nú að reyna sleppa vel í innkaupunum og sagði við afgreiðslustrákinn 5000 kall og málið er dautt.  Hann var ekki alveg til í þetta en það kom smá fát á stelpuna  sem var á undan Guðrúnu sennilega bara því hún var bara með eina kippu.  Svo röltum við í bænum og heyrðum aðeins í Hvanndalsbræðum sem eru by the way algjörir snillingar.  Nýji diskurinn þeirra er bara snilld.  Þar sem bónus býður betur var ákveðið að versla inn þar að venju.  Við Guðrún þurftm að versla fyrir gæruhitting mikin og  lika fyrir heimilin líkt og Árni og Sigga.  Þannig að það var mikið verslað.  Árni Gísli sagði afgreiðsudömunni að við værum afdalabændur sem að kæmust sko bara i bæinn 3 á ári.  Unglingstelpur í röðinni gláptu eins og þær hefðu aldrei séð fólk áður.  Aftur ætlaði Guðrún að sleppa vel og gaf aftur sama kostaboðið þar að segja 5000 kall og málið væri dautt en kassadaman gat ekki tekið því boði því þá sagðist hún að hún fengi eitthvað lítið útborgað og miða við hvað við versluðum mikið þá eru kanski bara sæmileg laun í ´Bónus.  Á meðan ég var í Bónus fékk ég einnig símtal þar sem var boðið kostaboð að keyra 2 konum á Siglufjörð um hágdegi á sunnudegi og enda svo í Árgarði svo ca 12 tímum seinna.  Akkurat þegar kom að því að svara þessu kostaboði fékk ég klikkað hláturskast sem stafaði reyndar ekki af því hvað mér fannst þetta ekki neitt spennandi kostaboð heldur af skrítlu frá Árna sem hljóðaði þannig núna er allt komið nema ég á bara eftir að sækja rúgbrauðið og kardimonnudropana aumingja gömul konan fyrir aftan okkur fékk næstum slagog horði afar illilega á Árna hvað er annars að því að versla rúgbrauð og kardimonnudropa.  Borðuðu svo svaka góðan mat á Greifanum og brunuðum svo heim.  Á laugardagskvöldið grilluðum ég,mamma,pabba,Lilla,Hjördís og Vignir og svo fór´eg til Guðrúnar og við fórum að setja grillmatinn á pinna og skemmtum okkur afar vel eins og sést á myndunum í albúminu versló 2008. 

Á sunnudeginum var svo komið að gæru hittningnum en í þeim hóp erum við nokkrar vinkonur sem vorum saman í grunnskóla og höfum haldið hópinn síðan.  Ég greip Sóley með og við hittum Elfu og Guðrúnu í KS Varmó og brunuðum svo á Steinstaði þangað komu svo Ásdís og Maggi og við skelltum tjöldunum upp. Ég,Guðún,Elfa,Sóley og Ásdís skelltum okkur svo i fjallgöngu og var stefnan tekin á Mælifellshnjúk.  Ég,Elfa og Sóley ákváðum að fara allavega upp á brún en hinar 2 aðeins styttra.  Við hittum hjón sem voru að koma niður og sögðu okkur að upp á brún væri fínt en sökum þokum á toppnum væri ekkert gaman að fara alla leið upp á topp.  Þannig að við fórum bara að þeirra ráðum og trítlðum niður aftur í stað þess að halda áfram í þokunni.  Vorum nestaðar þannig að það var bara gert gott picknick stopp.  Þegar niður var komið var brunað á Steinstaði og sá Hvanndalsbræðra diskurinn í spilarnum fyrir því að við vorum í góðu stuði á leiðinni og Guðrún stóð sem bara vel sem driver en að sjálfsögðu ræsti ég hana inn á sérleið á réttum stað sem upprifjum frá helginni á undan.  Við skelltum okkur svo í sund og áttum laugina og pottinn alveg út að fyrir okkur.  Maggi reyndar bættist í honum og einn útlendingur líka sem við komust svo síðar að því að var frakki.  Svo eftir sundið bættust Stína og Adda við í hópinn og þá voru allir komnir sem ætluðu að vera.  Við grilluðum svo þessa eðalgrillpinna og nammi nammi hvað þetta var gott.  Svo sátum við bara og höfðum það notalegt, mikið drukkið,mikið hlegið og haft gaman enda alveg super langt síðan við höfum hisst öll saman.  Kveiktum svo smá varðeld til að hita upp og til að grilla sykurpúða. 

Fengum einn ungling í heimsókn sem fannst svona líka gaman hjá okkur að það var nú bara næstum einum of.  Klómundur átti pottþétt pick upp línu kvöldsins er þetta fyrsta ballið þitt?

Aumingja klói hló svo mikið (sjá myndaalbúm) að bjórinn frussaðist út um held ég bara bæði munn og nef.  Ekki miskilja samt þetta með pick up línuna.  Klói var ekki að veiða unglinginn neitt.

Svo um miðnætti var skellt sér upp brekkuna á ball en í Árgarði var hið árlega sunnudagsversló ball með Geirmundi.  Þetta var alveg eðal ball og klikkað gaman á því eins og sést á myndunum.  Er sammála Gunnu Stínu með að þetta var bara næstum eins og í Miðgarði í "gamla" daga hittum fullt að fólki sem maður hittir oft ekki á djamminu nema á svona böllum og þorralótum. Ég var ráðin siðgæðisvörður fyrir ákveðna manneskju og stóð mig með stakri prýði hvað annað.  Það var alveg heillingur af fólki á balli og mikið stuð.  Mikið dansað næstum of mikið allavega fannst veskunni minni það sem að þoldi ekki eina danssveifluna hjá okkur Öllu og opnaðist en það var góður maður sem bjarðaði m.a. símanum mínum mínum sem flaug úr töskunni ásamt fleira dóti en það fannst allt sem mér fannst reyndar snilld því sumt fann hinum megin í salnum undir borði eftir að ljós voru kveikt.  Greinilega verið sveifla á okkur enda sveiflukóngurinn að spila ríðum sem fjandinn...Svo eftir ball var haldið niður á tjaldstæði og sátum þar nokkur ég,Guðrún,Kiddi,Rúnar,Árni Gísli,Stefan og Dóri og trölluðum fram á morgun. 

Ég,Þórey,Guðrún,Ingibjörg og Erna skelltum okkur svo á Mamma mía í bíó á þriðjudagskvöldið og þetta er alveg snilldar ræma.  Fékk reyndar pínu flash bakk á sunnudagsgæruhittingin í nokkrum atriðum.  Við borðuðum á Nings fyrir bíó sem klikkaði ekki frekar en fyrri daginn.

 


Rall 2008 !!!

Átti eftir að skella þessu bloggi inn.  Síðustu helgina í júli varið haldið hér í Skagafirðinum hið árlega rall Bílaklúbbsins.  Þetta árið hét það Skagafjarðarrall Ólafshúss og Vörumiðlunar.  Þetta er alltaf jafn skemmtilegt að stússast í kringum þetta.  Á föstudeginum fór maður að fá fiðring keppendur farnir að streyma í bæinn og um kvöldið var svo fyrst starfsmannafundur og svo fundur með keppendum.  Guðrún og Emma gistu svo hjá mér en við 3 ásamt Önnu Birgis vorum saman tímaverðir á tímastöð.  Laugardagurinn var tekinn snemma eða vaknað um 7 og brunað út í Vöumiðlun og um klukkan 8 brunuðum við svo út úr bænum og fram á Mælifellsdal.  Við höfðum það fínt í blíðunni sem var allan daginn á meðan við biðum eftir að ræsa fyrstu ferð upp dalinn en höfðum reyndar alveg nóg að gera við að snúa bílum við þar sem okkar hlutverk var líka að passa að enginn færi inn á veginn eftir að við vorum búnar að loka honum.  Það voru merkilega margir túristar sem höfðu ætlað sér að ganga á Mælifellshnjúkinn og svo voru nátturlega líka frekir íslendingar sem fannst alveg sjálfsagt að fá að smella sér inn á leið þrátt fyrir að við værum búnar að loka en nei nei við ráðum.  Við vorum svo þarna í tímatöku til ca 14  og skemmtum okkur vel í biðtímanum sem verður á milli leiða,borðuðum nesti og höfðum það gott í blíðunnu og svo var brunað í Krókinn aftur og Nafirnar keyrðar.  Rallið gekk í alla staði vel.  Fábært veður, skemmtilegir keppendur, frábær starfsmanna hópur, enginn meiðsli, 16 af 17 áhöfnum kláruðu rallið sem er frábært. Svo var komið að því skemmtilegasta SÍÐUSTU SÉRLEIÐ en það er verðlaunaafhending,matur,ball og djamm.

Skelltum okkur aðeins í heita pottinn og gerðum okkur sætar og fínar og svo hittumst ég,Anna,Guðrún,Emma,Alda,Baldur,Kristinn,Brynja og Kata heima hjá Kötu og fengum okkur smá fordrykk áður en við héldum á stað á síðustu sérleið.  Fengum okkur hvítvín með matnum sem var by the way rosalega góður.  Svo var verðlaunaafhending og þrátt fyrir stífa hvítvínsdrykkju tókst mér nú að gefa öllum rétta verðlaunadollu Smile

Hugmyndin hafði verið svo að skreppa aðeins heim á milli áður en ballið byrjaði en við Guðrún höfðum svo bara ekki tíma í það, þar sem tíminn flaug afram í spjalli við Úlla,Hvata,Ísak og fleira skemmtilegt fólk.  Áður en við vissum var klukkan orðin rúmlega 00:30 og hljómsveitin ekki komin á svið.  Þá ákvað ég að það væri nú best að drífa í því  og laumaðist upp ´þar sem hljómsveitin var og spurði þá hvort að þeir hefðu ekki verið ráðnir til að vera á sviðinu frekar en lokaðir inn í herbergji.  En þetta var hljómsveitin Buff.  Sagði þeim jafnframt að t.d ef Geirmundi væri að spila væri hann löngu löngu byrjaður að spila ég held að þetta hafi eitthvað ýtt við þeim því þeir spurðu hvort ég væri að líkja þeim við hann uuu nei hann væri komin á svið en það eruð þið ekki og því eins hef ég enn sem komið er bara heyrt að þið séuð góðir á böllum.  Þeir báðu um 20 mínotur en ég bauð þeim 10 sem þeir reyndar stóðust og JÁ það er alveg klikkað gaman á böllum hjá þeim þegar þeir fóru loksins að spila.  Mikið dansað og mikið drukkið á síðustu sérleið þetta árið.  Eftir rall fær maður oft pinu spennufall þegar maður er alveg viss um að nú sé þetta búið og allt hafi tekist vel og stundum verður maður þreyttar eða alveg súper kátur sem var pottþétt sá gírinn þetta árið.  Því þetta var bara eitt að skemmtilegu djömmum það sem er liðið að þessu ári.  Það er ótrúlega erfitt samt að lýsa því í orðum og því miður var ég ekki með myndavélina.  Þetta var bara allt eitthvað svo klikkað gaman, myndaðist góð stemming í húsinu milli starfsmanna rallsins og keppenda sem gerist ekki alltaf.  Spjallaði ótrúlega mikið við marga keppendur og service lið  sem maður hefur ekki gert lengi og dansaði alveg fæturna af mér næstum því.  Þegar búið var að loka barnum hélt gleðin bara áfram út á götu já eða gangstéttinni fyrir framan barinn enda algjör blíða úti.  Svo  héldum við nokkur áfram og röltum við á tjaldstæðinu reyndar með smá viðkomu heima þar sem ég  skipti í þægilegri útifatnað og gaf 2 svöngum herrum að borða.  Það var rólegt á tjaldstæðinu en hittum samt slatta af vakandi rallý liði  og spjölluðum við þau en þá vorum við bara orðin 3 eftir af staffa liðinu (ég,Kiddi og Atli) já við vorum sko ekki að klikka á síðustu sérleið. Ákvað svo um ca 7 að nú væri komin tími til að flakka út af síðustu sérleið og rölti heim að sofa. 

En á næsta ári er BS 20 ára og þá verður massa mikil gleði.  Þá viljum við sjá alveg fullt fullt að bílum og alla sem hafa einnhverntíman starfað við keppni hjá okkur og gamla keppendur líka þó að þeir keppi kanski ekki lengur geta þeir allavega komið og horft á eða unnið og djammað með okkur.

En hef sem sagt unnið á nær öllum keppnum meðal annars þeim fyrstum þýðr það að maður sé að verða eitthvað gamall??? 

 

 


Komnar myndir!!

Komnar alveg heillingur af myndum sem ég veit að einnhverjir voru farnir að bíða eftir að sjá.  Albúmin heita Rally og Versló 2008.  Myndirnar koma reyndar inn í öfugri röð þannig að það er best að byrja neðst.  Ef einnhver kanna að breyta þessu má sá hin sami gjarnan hafa samband við mig.

Annars er bara allt fínt að frétta.  Vinna byrjuð aftur eftir nokkra daga frí.  Styttist í að skottan mín komi heim. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband