Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

Helst í fréttum!!!

Það er svo sem ekkert mikið i fréttum!!

Nema hvað að ég er ennþá að bíða eftir að(með fullri virðingu) h....... Alfa Kassinn svari mér.  Skólinn gengur sinn vanagang, bara ágætlega, tek lokapróf 14 des er samt að spá í að lesa kanski meiri sænsku ef ég útskrifast úr þessum áfanga, sem ég geri vonandi, aftur á móti er ég orðinn meira stressuð fyrir hin 2 prófin úr fjárnáminu, það sem það er mikið efni og lítill tími auk 2 verkefna sem á að skila á síðasta kennsludegi sem mer finnst alveg glatað, hefði viljað vera búnn að fá þau miklu fyrr.Svo nátturlega alveg min heppni lendi annað prófið frá Íslandi á  sama degi og stóra  sænsku prófið þannig að 7 tímar af þeim sólarhringi fara í að taka prúf ÚFF ÚFF. En það gerist þá ekkert verra en  eitthvað af þessu klúðrist það verða svo sem engir heimsendir.

Svo er ég búinn að vera sækja um fullt að vinnum en ekki mikið að frétta af þeim málum ennþá, bara bíða og vona að ég fái einnhverstaðar jákvætt svar sem fyrst.

Meira er ekki að frétta í bili.

Over and out i bili Lulls

Veriði nú duglega að kommenta,nota gestabókina og svara spurningalistunum i siðustu færslum.


Besta að halda bara áfram, veriði svo dugleg að svara!!!

 Tok þetta af Elfu bloggi!!!!

1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög detta þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki,  og mættir mér einhversstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?

16. Hvaða búðir elska ég að fara í?


Ertu fullorðinn ellar hur?

Ég hef oft verið að pæla í því hvenær maður verður fullorðin. Mér finnst ég ekki hafa náð þeim þroska að vera "fullorðin"...kannski er það frekar spurningin um að vilja það...hver veit... En hérna eru 25 atriði sem "styðjast" við það að maður sé orðin fullorðin...hmmm

1.  Pottaplönturnar þínar eru á lífi og þú getur ekki reykt eina einustu.
2.  Þú gefur þér tíma til þess að taka af þér úrið áður en þú ferð að stunda kynlíf.
3.  Þú geymir meiri mat en bjór í ísskápnum.
4.  Klukkan 6 að morgni er fótaferðatími en ekki háttatími.
5.  Þú heyrir uppáhaldslagið þitt í matvörudeildinni í Hagkaupum.
6.  Þú fylgist með veðurfregnum.
7.  Vinir þínir giftast og skilja í staðinn fyrir að byrja og hætta saman.
8.  Sumarfríið þitt styttist úr þrem mánuðum í þrjár vikur.
9.  Bolur og gallabuxur eru ekki lengur spariklæðnaður.
10. Það ert þú sem hringir á lögregluna og kvartar yfir hávaða í nágrönnunum.
11. Eldri ættingjar hætta að segja kynlífsbrandara nálægt þér.
12. Þú hefur ekki hugmynd um hvenær pizzustaðir loka á nóttunni.
13. Bílatryggingarnar lækka en afborganir af bílaláni hækka.
14. Þú ert farin að borða salöt sem aðalrétt.
15. Þú færð bakverk ef þú sefur í sófanum.
16. Þú vaknar kl 9 á sunnudögum af því að "það er svo hressandi"
17. Út að borða og bíó er að fara út að skemmta sér en ekki bara byrjun á góðu kvöldi.
18. Þú verður slæmur í maganum, ekki saddur/södd ef þú færð þér heila pizzu kl 3 að nóttu.
19. Þú ferð í apótekið til þess að fá þér íbúfen,ekki til þess að kaupa smokka eða þungunarpróf.
20. Vín undir níuhundruð kalli eru ekki lengur ágætiskaup.
21. Þú borðar morgunverð á morgunverðartíma.
22. Ég get ekki drukkið eins og ég er vanur kemur í staðinn fyrir "Ég ætla aldrei að drekka aftur svona mikið"
23. 90% af tíma þínum framan við tölvuna fer í raunverulega vinnu.
24. Þú drekkur ekki lengur heima fyrir til þess að spara pening áður en þú ferð á bari.
25. Þú lest allan þennan lista og leitar í örvæntingu að einhverju sem á ekki við þig

Þetta er nu bara svolítið sniðugt en miðað við þetta er ég ennþá bara svona hálf fullorðinn hahaha

Veit ekki hvort það er gott eða slæmt!!! Hvað segið þið um það lesendur góðir???


Gjörið svo vel að svara!!! takk takk

Mer finnst svo gaman ad svona.InLove

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?


bara fyndið

Fréttatilkynning frá Þjóðleikhúsinu .

Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir nýtt verk sem gerist á Suðurlandi og nefnist “ GLÆPAGENGIÐ “ eftir Davíð Oddsson.

Leikarar eru :
Árni Johnsen
Gunnar Örlygsson
Guðjón Hjörleifsson

Gestaleikari er enginn annar en hinn ástsæli Eggert Haukdal.
Góða skemmtun.

P.s. Sætaferðir verða frá Tuborg-verksmiðjunni og bílstjóri verður
Eyþór Arnalds.

millilandaflug

gleymdi alveg að millilandaflug er alltaf að verða flóknara og flóknara, er svo sem ekkert að mótmæla að öryggi se haft i fyrirrumi en þegar maður þarf nú að fara troða öllu í plastpoka svo sem eins og snyrtivörum, þegar ég kom á Kastrup voru svona pokar út um allt og starfsfólk að útskýra þetta fyrir fólki, þannig að ég fékk svona poka og setti gloss og varasalvan minn samviskusamlega í pokan og svo var röðin til að inrita sig ekkert smá löng en svo ´sá ég á tölvuskjá að fyrir mitt flug mátti maður fara að innritunarborði 2 3 5 og 7 og svo 29 og ég sá að við 29 var engin röð þannig að ég stormaði þangað nei nei stóð ekki saga klass á skjanum en þessi yndislega kona var nú samt svo góð að innrita mig svo var röðin í tollnum svaka lengja þar sem ferðalangar voru ekki alveg að fata þetta nýja kerfi, ég reyndar fattaði nú bara í röðinni að það voru skæri í bakpokanum og sem betur fer fattaði ég það áður en ég fór í gegn og gat skutlað þeim i ruslið hehe danirnir hefðu nú ekki orðið kátir.

Þegar ég fór svo tilbaka þá prófaði ég þetta nýja innritunar sjálfsafgreiðslu kerfi og þetta er bara að svinvirka frábært að fá bara brottfaraspjald á nokkruð sekondum i staðinn fyrir að standa lengi i röð og svo hendir maður bara töskunum á fyrsta færibandið allgjör snilld en svo sá eg enga nestispoka(finu glæru pokana) þannig að um leið og ég hendi töskunum af mer spurði ég hvort þeir væru ekki einnhverstaðar ju ju bara við tollshliðið en þar voru bara bakkar og þar að leiðandi allt sett inn i gegnun tekkmyndavelina og allir stoppaðir, ég var nú búinn að taka þetta allt saman i hvitan poka en nei nei var stoppuð og þurfti að færa allt yfir i glæran veit ekki alveg af hverju þeir eru ekki með poka fyrir framan svo maður geti verið buinn að þessu og ju svo tók kallinn 2 kókómjólk af mér og tilkynnti mer að ég mætti ekki fara með þær inn á svæðið haha voru ekki gjaldgengar i glærupokan, svo keypti ég mér 1/2 gos i frihöfninni og þar sagði konan mer að eg mætti ekki opna hana fyrr en inn i velinni ef ég vilti taka hana inn i vel, svo ef maður er ekki að fara í beint flug þá þurfa kassamenirnir i frihöfninni að pakka öllum vökva serstaklega inn. 

Já það er orðið heljarinnarfyriæki að komast út i vel.


Íslandsferðin!

Já eins og ég skrifaði síðast skrabb ég aðeins til Íslands, það var stutt stopp en mjög gott að hitta alla.  Ég lagði sem sagt á stað héðan klukkan 11 á fimmtdagsmorgni og tók lest til Gautaborgar og rútu þaðan til Kastrup flugvallar en því miður er ekki beint flug frá Gautaborg eins og er en Iceland express er með það en bara á sumrin, skil ekkert í þeim að vera ekki með þetta allt árið en kanski verður það einnhverntíman.Svo var flug klukkan 20 um kvöldið sem var reyndar í lenga lagi þar sem að Keflavík tók á móti okkur ofsa roki og rigningu en við lendum nú samt og á vellinum biðu tengdó eftir mér, ég hitti líka Smára í fluginu frekar skondið að rekast á hann en hann var að koma úr vinnuferð frá Kína og Japan.  Á föstudagsmorgunin fór ég svo með Steina norður og vorum við komin norður um 3 leytið, ég fór fyrst  í Úthlíðina og fór svo í sveitina, veðrið var nú ekki sem berst þannig að við lögðum tímalega á stað í Krókinn og það bara snjóaði og skóf og á kafla var bara ansi blint.  En svo var kistulagning í kirkjunni klukkan sex en þar kvöddu við fjölskyldan hann Binna föðurbróður minn sem lést þann 2 nóvember síðastliðinn eftir mikil en stutt veikindi og á svona stundu finnur maður einn og aftur að maður er aldrei tilbúinn að missa einnhvern sem manni er kær þó svo að innsti inni viti maður að fyrst svona var komið mundi hvíldin ein vera honum fyrir bestu.  En allar minningarnar sem ég á munu eflaust koma að einnhverju gagni til að fylla upp í skarðið, en það er bara svo ótrulegt að ekki sé hægt að finna einnhverja lækningu við þessum hræðilega sjúkdóm sem krabbamein er. Við fórum svo í kaffi heima hjá Lillu frænku.  Á laugardeginum var svo jarðaförin og svo var ég bara í afslöppun i sveitinni um kvöldið, á sunnudagurinn fór svo í að koma sér í bæinn og um kvöldið náði ég svo að sjá framan í smá af fólki og koma út jólabögglum.  Ég gisti svo hjá Eddu og Steina og Edda skutlaði mér svo á völlinn á mánudagsmorgunin og var ég svo komin heim um 8 um kvöldið. Það var voða gott þegar lestin stoppaði loksins og þau feðgin komu að sækja mig enda búinn að vera á ferðinni síðan 5 um morgunin. Kristín var voða glöð á fá múddu sina heim og ætlaði aldrei að ná að sofna þurfti svo mikið að spjalla og knúsa mig, hún er svo mikil krúsimús hún dóttir mínSmile svo var voða notalegt að leggjast með tærnar upp í loft upp í sófa og kúra hjá kallinum yfir spólu og með íslenskt nammi.  Það er jú alltaf gott að koma heim eftir ferðalög, en það var líka ósköp gott að komast aðeins heim og hitta alla þó svo að maður hefði nú viljað hafa tilefnið annað.

 


Á leiðinni í smá skrepp heim á frónið!!

Það sem er helst í fréttum að ég er á leiðinni heim til Íslands í stutt stopp, kem til landsins á fimmtudagskvöldið og flýg út aftur á mánudagsmorgunin.  Verð mest allan tíman í sveitinni en mun renna í gegnum borginna þar sem ég flýg í Keflavík.  Er að koma til að fara á jarðaför því að hann Binni föðurbróðir minn var að deyja og er hugur okkar þessa daganna hjá þeim Jónu,Eddu,Steina og Tobiasi.  En ég mun koma til með að vera með íslenska gemsanúmerið mitt sem er 8625771 og einnig líka sænska sem er (0046)738305099.  Þannig að þið náið í mig í öðru hvoru þessa númera og svo i simanum í sveitinni sem er 4538197.

Ég mun nota ferðin og koma með jólabögglana með þannig að það væri fínt að hitta á þá sem eiga slíkt hjá mér.Smile

En annars er stoppið stutt og verður ekki mikil tími notaður í heimsóknir en endilega veriði i sambandi.

Bestu kveðjur Lulla 


Meira fyndið (allavega í stíl við minn humor)

Mundu eftir því þegar ég var að pikka inn ófarir piltanna inn að við Elfa urðum vitni fyrir nokkrum árum að óförum ungs pilts sem var ennþá fyndnara.  Við vorum að labba í Skipholtinu minnir mig og það var sól og fínt veður og það kemur "voða töffara " i jakkafötum og með sólgleraugu, sem labbar frammúr okkur og haldiði að hann verði ekki fyrir því að þruma á stöðumælir sem var óvart þarna staddur og við með okkar nasty humor fannst þetta nátturlega mjög fyndið, ég reyndi eins og ég gat að halda niðri mér hlátrinum en svo þegar Elfa sagði ekki hlægja þá nátturlega sprakk ég og varð að setjast niður á gangstéttina ég hló svo mikið, en allavega hefði ég verið gaurinn hefði ég sko þrumað áfram og flýtt mér sem hraðast í burtu en nei hann stoppaði og setti setti gleraugun í vasan og sagði svo þau eru sko dalitið dökk og þá sprungum við aftur.

En talandi um að sjá illa en samt ekki þá varð ég fyrir því að ég hélt að sjóninni minni væri mikið að hraka þegar við vorum að koma frá Gautaborg um daginn og sá þegar við komuð niður af einni blindhæð að framundan á veginum sá ég að það er bíl að bíða eftir að komast inn á veginn nema hvað að í farþegasætinu sá ég þelþökka veru með öryggisbelti og hélt að þetta væri hundur en fannst það samt ekki passa (hef aldrei séð hund i belti áður ) þannig að ég spurði Ella því mér fannst það heldur ekki geta verið að þetta væri mannvera (þo svo að það sé örruglega til svertingja dvergar ) en jú jú þetta var sem sagt svartur hundur i öryggisbelti sem er bara snilld bæði þvi að þá er i lagi með sjonina i mer og lika gott að allir séu spenntir!!!

Bestu kveðjur Lulla


GSM símar bjarga manni stundum!

Tók eftir því að ég var ekki búinn að setja þetta inn og verð einfaldlega að deila þessu með ykkur þetta var svo fyndið, veit samt að það verður ekki eins fyndið að lesa þetta eins og ef þið hefuð orðið vitni af þessu en enga síður, veit líka að það eru ekki allir með svona skrýtin humor og ég en vonandi einnhverjir.

 Allavega var þetta einn dag eftir skóla að ég ákvað að rölta aðeins í bæinn þar sem það var svo gott veður og settist á kaffihús (sat úti)og sat þar í mestu makindum og var að fylgjast með mannlífinu og sötra kaffið mitt.(Þeir sem þekkja mig vita að ég hreinlega dýrka að sitja bara og fylgjast með fólki) en svo tók ég eftir því að 2 ungir menn komu gangandi eftir götunni sem er svo sem ekkert merkilegt nema að þeir voru greinilega par sem er svo sem ekkert til að spá neitt sérstaklega í en klæðnaðurinn var ansi spes þeir voru sem sagt eins klæddir í glans jakkafötum og támjóum skóm annar í hvítu og hin í silfruðu (hafa kanski verið að láta pússa sig saman) en svo byrjaði gamanið þeir voru grenilega mjög ástfangnir og þurftu að vera í mikilli snertingu hvor við annan sem var aðeins og mikil þar sem sá silfraði steig með támjóna skónum sínum á þann hvítklædda sem gjörsamlega tókst á loft og lendi nánast hliðin á borðinni sem ég sat, svo kom sá silfurklæddi hljóðandi oh my god og kraup hjá honum og spurði hvort að það væri í lagi með hann og hvort fötin hefðu sloppið og fleira og ég fann að ég var gjörsamlega að springa úr hlátri og þegar ég leit á fólkið i kringum mig voru allir grafalvarlegir og þá fann ég nátturlega fyrir ennþá meiri þörf að hlægja og vissi að ég væri engan vegin við hæfi en ég var smt alveg að springa og kunni ekki við að standa upp þar sem þeir litlu turtildufurnar voru í vegi fyrir mér.  Þannig á þa datt mer í hug að taka upp síman og hringdi (bara til öryggis svo simin myndi nu ekki hringja ég er ekki ljóska)reyndar bara í þjónuver bankans og babblaði smá á íslensku og leyfði svo smá af hlátrinum að koma, heyrði svoáð konan á næsta borði spurði vinkonu sina hvort ég væri vrkilega að hlægja af þeim en hun svaraði nai auðvitað ekki hun er bara að tala í síman.Þannig að þarna bjargaði síminn mer alveg!!!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband