30.10.2006 | 10:17
Hrakkfallasnillingur jabb það er ég!!!
Jæja jæja núna er ég komin heim frá doksanum og það var eins og mig grunaði eftir að doksinn sem var þessi fína kona hafi skoðað mig og pikkað og potað í hálsinn,bakið og axlir og spurt hvernig þetta byrjaði kom niðurstaðan: tognun í hálsi og meðferð er meiri og sterkari verkja og bólgueyðandi töflur og nota heita grjónapoka, fara í nudd og fara vel með mig,þegar ég spurði hana svo hvort hún gæti mælt með einnhverjum nuddara sagði hún bara að ég yrði að velja úr simaskranni þannig að þeir eru kanski allir jafngóðir, hvar er Helena nuddarinn minn núna???
En henni fannst það afar merkilegt að ekkert sérstakt hafi komið fyrir, því þetta byrjaði bara þegar ég vaknaði á fimmtudagsmorgunin þegar ég var að vakna en ég er nátturlega snillingur að geta tognað sofandi. Ég sagði henni eins og satt er að ég hefði vaknað klukkan 2:30 um nóttina því þá vaknaði Kristín til að pissa og þá var allt í lagi með mig en svo þegar ég vaknaði klukkan 07:00 og fór á fætur var ekki alveg í lagi og er ég samt með háan sársaukaþröskuld sem var ekki að meika þetta og ég er búin að yfirheyra alla heimilismeðlimi þar að segja Ella,Kristínu og köttinn og þau segjast öll vera saklaus.
En enga síður þetta hlýtur að lagast eins og hin 2 skiptin sem ég hef tognað. En það var sko alls ekki á planinu að eyða haustfriinu mínu sem var að byrja í dag(vikufrí ur sænsku skólanum) í svona vitleysu en það verður bara að hafa það.
Hrakkfallakveðjur Lulla
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2009
- Desember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
vinir mínir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
obbosííí!!! Já Lulla mín það er ENGINN einsog þú hvað svona varðar!! Ég vona að þú verðir fljót að jafna þig skvís. ;O)
Kveðja frá baunaspíru.
þórunn þorleifsdóttir, 30.10.2006 kl. 13:09
Ertu búin að yfirheyra koddan. Frétti að ofbeldishneigðir koddar gangi lausir
Sóley (IP-tala skráð) 31.10.2006 kl. 15:34
eikvað svo Típist að þetta gerist fyrir þig hahahahahahahahahahahahaha
Ingiríður (IP-tala skráð) 31.10.2006 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.