1.11.2006 | 23:32
Meira fyndið (allavega í stíl við minn humor)
Mundu eftir því þegar ég var að pikka inn ófarir piltanna inn að við Elfa urðum vitni fyrir nokkrum árum að óförum ungs pilts sem var ennþá fyndnara. Við vorum að labba í Skipholtinu minnir mig og það var sól og fínt veður og það kemur "voða töffara " i jakkafötum og með sólgleraugu, sem labbar frammúr okkur og haldiði að hann verði ekki fyrir því að þruma á stöðumælir sem var óvart þarna staddur og við með okkar nasty humor fannst þetta nátturlega mjög fyndið, ég reyndi eins og ég gat að halda niðri mér hlátrinum en svo þegar Elfa sagði ekki hlægja þá nátturlega sprakk ég og varð að setjast niður á gangstéttina ég hló svo mikið, en allavega hefði ég verið gaurinn hefði ég sko þrumað áfram og flýtt mér sem hraðast í burtu en nei hann stoppaði og setti setti gleraugun í vasan og sagði svo þau eru sko dalitið dökk og þá sprungum við aftur.
En talandi um að sjá illa en samt ekki þá varð ég fyrir því að ég hélt að sjóninni minni væri mikið að hraka þegar við vorum að koma frá Gautaborg um daginn og sá þegar við komuð niður af einni blindhæð að framundan á veginum sá ég að það er bíl að bíða eftir að komast inn á veginn nema hvað að í farþegasætinu sá ég þelþökka veru með öryggisbelti og hélt að þetta væri hundur en fannst það samt ekki passa (hef aldrei séð hund i belti áður ) þannig að ég spurði Ella því mér fannst það heldur ekki geta verið að þetta væri mannvera (þo svo að það sé örruglega til svertingja dvergar ) en jú jú þetta var sem sagt svartur hundur i öryggisbelti sem er bara snilld bæði þvi að þá er i lagi með sjonina i mer og lika gott að allir séu spenntir!!!
Bestu kveðjur Lulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.11.2006 | 23:08
GSM símar bjarga manni stundum!
Tók eftir því að ég var ekki búinn að setja þetta inn og verð einfaldlega að deila þessu með ykkur þetta var svo fyndið, veit samt að það verður ekki eins fyndið að lesa þetta eins og ef þið hefuð orðið vitni af þessu en enga síður, veit líka að það eru ekki allir með svona skrýtin humor og ég en vonandi einnhverjir.
Allavega var þetta einn dag eftir skóla að ég ákvað að rölta aðeins í bæinn þar sem það var svo gott veður og settist á kaffihús (sat úti)og sat þar í mestu makindum og var að fylgjast með mannlífinu og sötra kaffið mitt.(Þeir sem þekkja mig vita að ég hreinlega dýrka að sitja bara og fylgjast með fólki) en svo tók ég eftir því að 2 ungir menn komu gangandi eftir götunni sem er svo sem ekkert merkilegt nema að þeir voru greinilega par sem er svo sem ekkert til að spá neitt sérstaklega í en klæðnaðurinn var ansi spes þeir voru sem sagt eins klæddir í glans jakkafötum og támjóum skóm annar í hvítu og hin í silfruðu (hafa kanski verið að láta pússa sig saman) en svo byrjaði gamanið þeir voru grenilega mjög ástfangnir og þurftu að vera í mikilli snertingu hvor við annan sem var aðeins og mikil þar sem sá silfraði steig með támjóna skónum sínum á þann hvítklædda sem gjörsamlega tókst á loft og lendi nánast hliðin á borðinni sem ég sat, svo kom sá silfurklæddi hljóðandi oh my god og kraup hjá honum og spurði hvort að það væri í lagi með hann og hvort fötin hefðu sloppið og fleira og ég fann að ég var gjörsamlega að springa úr hlátri og þegar ég leit á fólkið i kringum mig voru allir grafalvarlegir og þá fann ég nátturlega fyrir ennþá meiri þörf að hlægja og vissi að ég væri engan vegin við hæfi en ég var smt alveg að springa og kunni ekki við að standa upp þar sem þeir litlu turtildufurnar voru í vegi fyrir mér. Þannig á þa datt mer í hug að taka upp síman og hringdi (bara til öryggis svo simin myndi nu ekki hringja ég er ekki ljóska)reyndar bara í þjónuver bankans og babblaði smá á íslensku og leyfði svo smá af hlátrinum að koma, heyrði svoáð konan á næsta borði spurði vinkonu sina hvort ég væri vrkilega að hlægja af þeim en hun svaraði nai auðvitað ekki hun er bara að tala í síman.Þannig að þarna bjargaði síminn mer alveg!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2006 | 22:46
Það er komin sýnishorn að vetri!!
Já nóvember heilsaði hér í Svíaríki þar að segja í okkar bæ frekar kaldur og með hvítri jörð. (norður Svíþjóð er á kafi í snjó) Ég vaknaði um 9 við það að dóttir mín mætti galvösk inn í herbergi og tilkynnti mér að það væri komin dagur og hún vilti horfa á mynd, ég var svo sem alveg sátt við það að fara að dröslast á fætur en leit svo út og prrrrr ég bara sá hvítt og vissi að það hlyti að vera kalt og allt í einu heillaði það rosa mikið að kúra aðeins lengur undir hlýrri sænginni, þannig að eg sagði Kristínu að koma með dvd ferðaspilaran og mynd og við skiltum bara horfa í mömmu og pabba holu sem við gerðum voða kósý. Mér skilst samt að þetta eigi að standa stutt yfir. En björgunarverk dagsins var að fara út og bjarga þvottinum inn sem var svolitið frosinn greyið.
Annars er það sem af er komið af þessu haustfríi búið að einkennast af leti, er reyndar að verða búinn að gera jólakortin, en það er smá tími eftir til að bæta úr því ekki það að smá leti er bara nauðsynleg ekki satt???
Bestu kveðjur í bili Lulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2006 | 10:17
Hrakkfallasnillingur jabb það er ég!!!
Jæja jæja núna er ég komin heim frá doksanum og það var eins og mig grunaði eftir að doksinn sem var þessi fína kona hafi skoðað mig og pikkað og potað í hálsinn,bakið og axlir og spurt hvernig þetta byrjaði kom niðurstaðan: tognun í hálsi og meðferð er meiri og sterkari verkja og bólgueyðandi töflur og nota heita grjónapoka, fara í nudd og fara vel með mig,þegar ég spurði hana svo hvort hún gæti mælt með einnhverjum nuddara sagði hún bara að ég yrði að velja úr simaskranni þannig að þeir eru kanski allir jafngóðir, hvar er Helena nuddarinn minn núna???
En henni fannst það afar merkilegt að ekkert sérstakt hafi komið fyrir, því þetta byrjaði bara þegar ég vaknaði á fimmtudagsmorgunin þegar ég var að vakna en ég er nátturlega snillingur að geta tognað sofandi. Ég sagði henni eins og satt er að ég hefði vaknað klukkan 2:30 um nóttina því þá vaknaði Kristín til að pissa og þá var allt í lagi með mig en svo þegar ég vaknaði klukkan 07:00 og fór á fætur var ekki alveg í lagi og er ég samt með háan sársaukaþröskuld sem var ekki að meika þetta og ég er búin að yfirheyra alla heimilismeðlimi þar að segja Ella,Kristínu og köttinn og þau segjast öll vera saklaus.
En enga síður þetta hlýtur að lagast eins og hin 2 skiptin sem ég hef tognað. En það var sko alls ekki á planinu að eyða haustfriinu mínu sem var að byrja í dag(vikufrí ur sænsku skólanum) í svona vitleysu en það verður bara að hafa það.
Hrakkfallakveðjur Lulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.10.2006 | 17:36
Heilsugæsluheimsókn!
Var þess að njótandi að þurfa að nota heilsugæsluna hér í fyrsta skipti fyrir mig í gær, hafði reyndar einu sinni notað hana fyrir Kristínu og þá hringdi ég bara og gaf upp kennitölu og ekkert mál fékk tíma sama dag og þurfti ekkert að borga en hér er öll læknis og tannlæknis þjónusta frí til 20 ára sem er bara snilld, en sem sagt á fimmtudaginn vaknaði ég með þetta svaklega tak og verk frá halsi og niður í öxl og bak, hélt í fyrstu að ég hefði bara legið svona illa og dreif mig á stað með Kristínu í leikskólan og fór svo í viðtalið sem ég var að skrifa um í fyrri færslu á atvinnuleysisskrifstofunni og þaðan í skólan og sem betur fer hafði ég haft vit á því að taka verkjatöflu með því að alltaf versnaði verkurinn, í gær þurfti ég svo að fara í apotekið sem er í sama húsi og heilsugæslan og þar sem égvar ekkert skárri ákvað ég að það væri víst best að panta tíma hjá lækni, þegar ég gaf svo upp kennitölu þá var ég ekki inni í kerfinu og konan horfði bara á mig og spurði hvort þetta væri mín heilsugæsla ég sagði að ég hélti það allavega væri hún næst minu heimili og ég hefði komið hingað einu sinni áður með dóttur mína og þá hefði hún verið inn í tölvunni en fullorðnir þurfa sem sagt að skrá sig sem ég og gerði fyllti út pappír , svo var maður að bíða þarna sem fór að skamma starfmanninn í búrinu fyrir að fylla þetta ekki út með mér bara fyndið en ég sagði honum nú að þetta væri allt í lagi ég gæti þetta nú alveg, svo meðan konan var að skrá mig stóð önnur yfir henni og sammaði hana fyrir að hafa fyllt út í einnhvern reit sem hún átti ekki að gera. En allavega fékk ég að komast inn á biðherbergið og þar fór dollinn sem skammaði konuna að segja mér sjúkrasöguna sína mjög spennandi ég fékk svo að tala við hjúkku sem að sagði mér að það væri engin tími laus í dag en gaf mér tíma á mánudag og sagði mér bara að smjatta á verkjatöflum yfir helgina sem ég og er að gera er pínu skárri í dag en fimm og föstu dag en ekki nógu góð þannig að ég fer liklega til doksa á mánudag en fékk svo að vita að það kostar "aðeins" 120 sænkar krónur (um 1200 íslenkar)að hitta hann sem mér finnst reyndar ógeðslega dýrt en þarna er grenilegalega verið að safna aðeins kanski vegna þess að börnin fá frítt eins gott að nýta tíman og hugsa hvort maður hafi einnhverjar fleiri spurnigar. En þetta kemur allt í ljós á mánudag.
Bestu kveðjur Lulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2006 | 16:58
Komin tími til að blogga!!
Já það er víst komin tími til að blogga smá, annars gengur lífið hér sinn vana gang.
Vinna hjá Ella og Kristín á leikskólanum og ég í skólanum.
Frítíminn minn hefur svo aðalega farið í að vesenast og fylla út pappíra sem merktir eru Alfakassinn því að eitthvað virðist hafa klikkað á Klakanum þannig að það sem átti ekki að vera neitt mál er bara heilmikið mál pappírs og tíma vinna.
Ef ég byrja aðeins frá byrjun þá er málið svoleiðis að ég sagði upp vinnunni heima vegna þess að ég var að flytja út,vegna þess að Elli fékk vinnu hér og þar að leiðandi fékk ég atvinnuleysisbætur í 3 mánuði frá Íslandi. Svo eftir þessa 3 mánuði átti Svíþjóð að taka við og eftir því sem ég var búin að fá upplýsingar bæði á Íslandi og hér átti það ekki að vera neitt mál að skipta þar sm að þetta var innan norðanlanda og einnhvert samningur á milli landanna og framvegis en nú er mánuður síðan þessir 3 mánuðir líðu og ég ekki ekki ennþá komin inn í Alfakassan en það er nafnið á kerfinu hér og ekki komin með vinnu (annars væri ég nú ekki að þessu) En það virðist vera sem að eitthvað hafi klikkað með það að Ísland sendi pappíra hingað út í sambandi við það að ég er að flytja réttinn minn og þar að leiðandi er ég búinn að þurfa að senda inn fullt af pappírum og fá mákonu Ella til að tala við þá í síma því að ég er nú ekki alveg orðin svo sleip í sænskunni og var að senda inn vonandi síðustu pappíranna í siðustu viku og fæ vonandi jákvætt svar að komast inn í þennan Alfakassa í næstu viku, nú ef ekki þá verð ég líka alveg endanlega brjáluð.
Annars er ég að fara á fullt í atvinnuleit, pantaði viðtal og er búin í því hjá einnhverji konu sem á að vera minn aðstoðarmaður í atvinnuleit og fékk góðar upplýsingar hjá henni en ég var oft búin að spyrja á skrifstofunni og fékk alltaf það svar að það væri betra að klára skólan fyrst og fara svo að finna vinnu því að maður verður jú að hafa kunnáttu í sænskuu, sem er svo sem allt í lagi ef ég fæ atvinnuleysisbætur á meðan en hér á maður að fá þær þó svo að ég sé að lesa sænsku því ég er að læra hana jú til að geta fengið vinnu. En hef ekki fengið neinar atvinnuleysisbætur síðan að þessir 3 manuðir kláruðust og Ísland hætti að borga.
En núna er ég komin í C grubbu í sænskunám og þegar ég sagði konunni það í viðtalinu á atvinnuleysisskrifstofunni sagði hún að þá væri í lagi að fara setja mig inn hér og finna vinnu.
En grubburnar skiptast í a b c og d og er a fyrir byrjendur en ég var flutt strax í b og er nú komin í c og fæ þar að leiðandi góðkennt frá kennarnum að mega taka lokapróf í desember, en reglurnar eru þannig að kennarinn þarf að góðkenna það að maður megi fara i prófið og nemandi þarf að sína vissan árangur og ef maður nær svo lokaprófinu fær maður skjal frá skólanum sem er gott að hafa til með í atvinnuviðtöl en ég ætla nú reyndar að fara að byrja og fara bara sjálf ef ekki mjög mikla trú á þessari atvinnuleysirskrifstofu eftir samskipti mín við þau síðustu 3 mánuði en þó voru þó nokkur í sambandi við allt þetta pappírsflóð sem fylgir því að fá atvinnuleysis bætur frá Íslandi og svo að færast yfir sem er nú ekki ennþá komið eins og áður hefur komið fram. Sé eftir að hafa hlustast á þá og vera ekki löngu farin að leita að fullun krafti hef svo sem verið að skoða.
En þett kemur nú allt í ljós fljótlega allavega er ég búin að semja bréf og ferilskrá á sænsku þannig að nú er bara að skunda á stað er að bíða eftir meðmælendabréfi frá Olis og pappir frá námskeiðum sem ég tók heima.
Bestu kveðjur í bili Lulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2006 | 19:26
Hitt og þetta!
Halló!
Leikskólinn hjá Kristínu gengur bara vel og eins skólinn hjá mér,kennarinn talar allavega um að ég útskrifust væntanlega í desember allavega miða við að árangur á skyndiprófum.
En við tókum fyrst próf sem það sem almenn orðakunátta er könnuð og var það í 43 liðum og sagði kennarinn að það væri viljandi haft mjög þungt þannig að ef við værum nálagt miðju værum við í góðum málum og ég fékk sem sagt 22 stig.
Svo kom annað próf og þar var verið að prófa úr bókinn og þar fékk ég 57 stig af 66
Að lokum var svo málfræði próf og þar fékk 37 stig af 48 þannig að þetta hefur allt saman sloppið en við þurfum að skila ágætum einkunnum fyrir veturinn til að hún mæli með að við tókum lokapróf sem að útskifar okkur. Þá fáum við pappir sem hjálpar okkur að fá vinnu.
Ég er svo í 2 áföngum utanskóla að heiman sem gengur bara ágætlega.
Annars ætla ég að fara að sækja um vinnu fljótlega og sjá svo bara hvernig það gengur.
Annars er bara allt fínt að frétta úr Svíaríki, hér er bara fínt haustveður og nóg að gera hjá öllum.
Svo er ég bara farin að föndra jólakortin og komin langleiðina með að versla jólagjafirnar því það er nú stutt í jólin en eins og þeir sem þekkja mig vita þá finsnt mér þetta alveg yndislegur tímin, ég er svo mikið jólabarn að baka smákökur, gera jólakort og versla jólapakka er bara skemmtilegt.
Þannig að framundan er bara aatvinnuleit, skóli og jólaundirbúningur.
Bestu kveðjur í bili Lulla
ps komnar fullt af myndum inn á barnalandið Kristínar
Svo
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.10.2006 | 17:39
Heimsókn frá Íslandi!!!
Óskar, Alla og Þorgrímur Svavar skelltu sér hingað til okkar helgina 4-8 október, það var nátturlega bara frábært að fá þau og vonum bara að þau komi sem fyrst aftur. Þau flugu sem sagt til Köben á miðvikudegi og komu yfir með rútu inn í Gautaborg og þangað náðum við Kristín svo í þau en auðvitað þurfti snillingurinn ég að villtast inn í Gautaborg og voru þau sem sagt löngu mætt þegar ég loksins mætti ég, en ég sem stoppaði í Ikea og það er aðeins krókur útaf vegi 45 sem liggur annars beint í Gautaborg og tók sem sagt E6 frá Ikea til Gautaborg og lendi í umferðateppu og var því ansi tæp á tíma og svo alltof tæp eftir að ég villtist líka þar sem ég kom inn í Gautaborg á einnhverjum allt öðrum stað en ég er vön en ég hringdi bara heim og Elli bjargaði okkur með því að opna kort inn í tölvunni og lesa okkur inn á réttan stað en allt er gott sem endar vel og var voða gaman að hitta þau loksins og gaman að sjá viðbrögðin hjá púkunum, Kristín var orðin mikið spennt á leiðinni og svo þegar hún sá Þorgrím skrækti hún bara Þorgrímur Þorgrímur, svo þóttust þau vera pínu feimin en urðu svo bara sömu samlokurnar eins og vanalega. Svo var bara spjallað þegar heim var komið.
Á fimmtudeginum vorum við bara í rólegheitum, kíktum smá útsýnisrúnt og kíktum í heimsókn á leikskólan Kristínar en það var eitt að því sem Kristín var alveg með á hreinu að fara með Þorgrím á leikskólan sinn. Á föstudaginn förum við svo inn í Gautaborg og ætluðum að fara i tívoli en þá var það lokað argg ruglaði planið okkar alveg, en við röltum bara um í borginni í staðinn og fengum okkur að borða og fórum svo heim að spila og auðvitað var nokkrum góðum drykkjum gerð skil með.
Á laugardaginn tókum við Alla daginn snemma og fórum í mollið ég meina allar konur verða nú að versla öðru hverju en við vorum nú bara furðu stilltar hehe. En svo tókum við bílaleigurútu sem sagt 9 manna bílaleigubíl og brunuðum aftur inn í Gautaborg og fórum í tivoli og það var alveg feikilegt stuð nú svo var brunað heim og fórum svo út að borða á einn af uppáhöldstöðunum okkar þar sem þetta var síðasta kvöldið. Elli ætlaði svo að keyra þeim um morgunin en rútan fór frá Gautaborg klukkan 7 og því var ræs um fimmleytið en Kristín glaðvaknaði ætlaði sko að fara með að keyra Þorgrími sínum þannig að við fórum öll. En helgin í allastaði skemmtileg og frábært að fá þau.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2006 | 16:54
Nýjustu fréttir
Halló!
Það er líklegast komin tími til að uppfæra smá vegis, en hér gengur allt sinn vanagang.
Ikea ferð!!
Ég skellti mér í Ikea um daginn og sú ferð var nú svolítið skondin að mörgu leyti, ég fór sem sagt fyrst og fremst til að skila gölluðu ljósi sem gekk svo sem vel, Kristínu langaði að fara í leikfangalandið og þar sem það var engin röð þá ákvað ég að það væri bara fínt, ég gæti þá farinnínn og fundið nýtt ljós og svona á meðan, þar þurfti maður að fylla út blað með nöfnum og símanúmerum og fleira og svo fékk hún limmiða á sig og svo var líka stimpill sem við fengum báðar en þann stimpill var ungfrúin nú alls ekki á því að fá en gekk samt að lokum nema hvað þegar ég kom að sækja hana kom upp smá vesen þá átti ég ekki að fá hana þar sem að stimpill á henni sást ekki því að hún hafði grenilega byrjað á því að þurrka hann af sér eftir að ég fór en þar sem að strákurinn sem var að vinna kom á vakt akkurat þegar ég kom með Kristínu þá sagði hann að þetta mundi sleppa þar sem hann mundi eftir mér og líka að hún svaraði mér á sama tungumáli sem sagt íslensku en sagði jafnframt að þetta mætti alls ekki gerast að stimpilinn færi af.
Önnur snilld í Ikea þegar ég var búinn að versla fór ég á kassan og það var sem sagt alveg röð langt langt og ég sá að ég hefði bara ekki tíma til að biða en þá sá ég 2 kassa sem að var sama sem engin röð og skilti fyrir ofan sem á stóð afgreittu þig sjálfur, þannig að ég skellti mér þangað og þetta var bara snilld þarna skannaði maður bara vörurnar inn og ýtti svo á kort og valdi kortategund sem maður vill borga með setti í poka og búið á meðan hinir allir biðu i massa röð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2006 | 21:12
Hitt og þetta
Já haustið hætti við að byrja her í Svíaríki og það er bara búið að vera sól og blíða og 20-30 stiga hiti,ekki sem verst. Lífið gengur sinn vanagang og allt að komast í fasta rútinu.
Kristín Björg er farin að vera allan daginn á leikskólanum og líkar bara mjög vel, hún fær mikið hrós fyrir hvað hún er dugleg að bjarga sér og virðist skilja þær þónokkuð og er aðeins fara að slæða inn einu og einu sænsku orði í bland við íslenskuna, nú svo er bara bjarga sér á handapatamáli.
Ég er í sænsku skólanum alla daga fram að hádegi og það gengur bara ágætlega, svo tók ég 2 utanskóla fög að heiman er reyndar ennþá að bíða eftir bókunum, svo það er nóg lestrar vinna framundan. Það er svo nóg að gera i vinnunni hjá Ella.
Svo er maður bara farin að huga að jólunum, byrjuð að kaupa jólagjafir og svona og farin að huga að jólakortagerð þannig að endilega sendið mér línu með heimilisföngum ef þið viljið fá jólakort frá mér hehe.
og ef þið viljið senda mér jólakort,pakka eða bara póst eða koma i heimsókn þá eru nauðsynlegar upplýsingar hér
Bloggsíður:
http://barnaland.is/barn/16107/
http://sigurlaugdora.blog.is/blog/sigurlaugdora/
Heimilisfang:
Lungrens Väg 1 leg 1B
468 30 Vargön
Svergie
Símar:
Heimasími:(0046)521221771
GSM: (0046) 738305099 Lulla
GSM: (0046) 705559429 Elli
og veriði nu dugleg að kvitta fyrir ykkur i gestabókinni og nota athugasemdir svo ég sjái hverjir eru að fylgjast með.
Bestu kveðjur úr svíaríki Lulla og co
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2009
- Desember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
vinir mínir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar