Íslands heimsókn!!!

Halló!!!

Já það er komið á hreint að við erum að koma á klakan, reyndar erum bara ég og Kristín Björg búnar að panta far en við komum til landsins 15 febrúar og förum tilbaka 23 febrúar.  Það er ekki orðið alveg ljóst ennþá hvort Elli kemur líka.

Planið er allavega að við förum norður á föstudeginum 16 febrúar og verðum þar enda er þorrablót á laugardagskvöldinu akkurat á afmælinu mínu eða það skellur nú reyndar ekki á fyrr en um miðnætti því afmælisdagurinn er sunnudagurinn 18 februar.  En ekki amalegt að fá  þorrablótið akkurat á 30 ára afmælinu, svo verður smá veisla á föstudgskvöldinu í sveitinni, svo hlökkum við bara til að hitta alla, við förum svo suður aftur líklega seinnipartinn í vikunni og út á föstudeginum 23 febrúar.

Annars er bara gott að frétta, það snjóaði pínu hér á miðvikudaginn en í dag er svo bara sól og fínt veður þannig að hann hverfur örugglega strax.

Svo er Kristín að verða góð af hlaupabólunni og fer örugglega á leikskólan á manudag og þá byrja ég í skólanum aftur og þá fer lífið að komast í skorðum, enginn leti á morgnanna lengur hehe en við mæðgur erum búnar að vera mjög duglegar að sofa út í vikunni haha.

Læt þetta nægja i bili Lulla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlakka til að hitta þig þegar þú kemur til landsins. Þetta verður alveg mega þorrablót tíhí.

Sóley (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 17:08

2 identicon

Áttu ekki myndir af ykkur þarna úti kv Sísí

Sigríður Runólfsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 18:33

3 Smámynd: Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir

Hslló!

Sóley hlakka til að hitta þig líka, það verður sko stuðið.

Sísí allar myndir eru inn á siðunni Kristinar Bjargar á barnalandi.

Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir, 13.1.2007 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband