24.1.2008 | 23:59
Allt bara crazy i borgarstjórnarmálum!
Já ég varð bara að tjá mig aðeins um þennan skrípaleik sem er í gangi hjá þessari nýju borgarstjórn, þetta er að mínu mati óttarlega sandkassaleikur og ég sem held að sandkassaleikur væri mest fyrir börn á leikskólaaldri en ég held að þau séu bara miklu þroskaðari í sínum leik. Líking sem ég sé samt þarna á milli að börnin eru oft að skifast á að vera mamman eða litla barnið eins hjá þeim Ólafi og Villa ég má vera fyrst borgarstjóri og svo mátt þú vera hann ok?
Annað sem mér fannst frekar fyndið en samt mjög sorglegt var orðalag hjá þessum mönnum t.d þegar Ólafur sagði ég er bara farinn, hvernig ætlar hann að meika það að sinna þessu starfi ef hann ræður ekki við einn fund þó svo að það hafi kanski verið óþarflega mikil skríls læti í mótmælendunum sem ég er samt stolt af að hafa látið í sér heyra.
Og orðalagið hans Villa að menn eigi að geta átt afturkomu þó þeir séu búnir að vera veikir. Sérstakt orðalag og það er svo sem rétt að menn eigi alveg að geta komið aftur en er manninum samt ekkert annt um heilsuna sína því mér sýnist hann sannarlega ekki vera búin að ná sér.
Verð samt að segja að mér finnst Dagur,Svandís og Margrét svolítið klár og ég held að Glanni glæpur (Björn Ingi) eigi eftir að fara til liðs við Samfylginguna svona þegar hann er búinn að taka sér smá frí til að fara í ræktina til að hann passi nú í öll fötin sín.
Finnst bara að það ættu að vera kosningar um þetta!
En hvað segið þið annars um þennan skrípaleik???
Mig hlakkar til að sjá Spaugstofuna á laugardag!!
Bloggvinir
Eldri færslur
- Janúar 2009
- Desember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
vinir mínir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.