Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

vinnudjamm og Dalvík!!

Já við skelltum okkur nokkur úr vinnunni út borða svona til að hittast aðeins utan vinnu þar sem að sumarafleysingin er óðum að hverfa burtu þessa daganna.  Niðurstaða skemmtilegs kvöld er að hvítvín gerir mann kolruglaðan en við sem voru þarna vorum ég,Hrafnhildur,IngaRósa,Gróa,Sunna,Sirrý og  Pétur.  Við fengum alveg super góðan humar að borða og drukkum hvítvín með, umræðurnar voru ansi skrautlegar og verður ekki farið nánar út í það, en þið sem ekki komuð misstuð sko af miklu.  Við fórum svo heim til Ingu Rósu á eftir.

Síðustu helgi fórum við Kristín Björg á fiskidaginn mikla, fórum á föstudagskvöldi og komum tilbaka á sunnudeginum, á föstudeginum röltum við aðeins í bænum með Inga,Öllu og Fríðu Björg, á laugardeginum vorum við mest á höfninni, Kristín skemmti ser hið besta fór á hestbak og í svala kastalan og kiktum svo á róluvöll með Fríðu Björgu svona til að hvíla okkur aðeins á allri mannþrönginni, fórum svo aftur niður á höfn fengum okkur meira að borða og fórum svo í útileikhús á Dýrunum í Hálsaskógi, fórum svo upp í húsbíl til mömmu og pabba og svo aftur á röltið kíktum á tjaldstæðið þar sem Gummi og Marsy og dætur og þeiira fjölskyldur voru og fórum svo á bryggjusönginn og flugeldasýninguna.  Á sunnudeginum fórum við snemma á stað heim, fórum með Óskar,Öllu og Þorgrími í sund í Varmahlíð.

Svo styttist i 4 ára afmælið hjá skvísunni og það er komin talsverður spenningur.

Annars stefnir bara í rólega helgi enda næturvinnu helgi framundan.

 


blogg!!!

Já það er víst eitthvað búið að gerast síðan síðast, föstudaginn 27 juli brunaði ég í bæinn því að Kristín Björg var að fara út til pabba síns þann 28 en Hanna frænka og fjölskylda voru að fara út og fékk Kristín að fara með þeim.  Ég brunaði svo beint norður áfram og rétt kom við heima til að ná í útilegudótið en ferðinni var heitið í Hjaltadalinn í 30 ára afmæli Guðrúnar, þar var heilmikið stuð fram á nótt.  Sunnudagurinn fór svo í að pakka niður og þrífa íbúðina, Edda og mamma komu oghjálpuðu mér en ég var sem sagt að skipta um íbúð og flutti mig alla leið í næstu götu og bý nú í litlu einbýlishúsi með alveg rosa stórum garði.  Mánudagurinn fór svo í að flytja kassa milli húsa og við það hjálpaði Ingiríður mér um kvöldið komu svo hópur góðra vina til að hjálpa mér við stærri hlutina. Þúsund þakkir öll sömul :-)

Á mánudagskvöldið var íbúðin orðin frekar tóm því það var bara allt farið nema rétt dýnan en það var nú allt í góðu og var síðasta nóttin bara notaleg sem og fyrsta nóttin í nýja húsinu en ég flutti sem sagt formlega inn á þriðjudeginum. Svo var bara vinna við að koma sér fyrir svona á milli vakta í vinnunni.  Sem var ágætt því þá leið tímin hraðar meðan ég var að bíða eftir múslunni minni.

Verslunarmannahelgin var fremur róleg, ætlaði suður á laugardeginum að sækja Kristínu en það breyttist svo því að Hanna og co voru aðeins lengur en til stóð úti.

Ég kíkti á Holtstock á laugardagskvöldið en fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það hittingur í bústaðnum hjá Gumma og Marsý hjá systkinum pabba og þeirra fjölskyldum, það var mjög fínt.

Á sunnudeginum skelltum ég,Alla,Óskar,Ingi Svanur, Gísli, Þórey, Dabbi, Marianna og Eyþór okkur í Árgarð á ball með Geirmundi, við hittumst heima fyrir ballið, Jón Bjartur mætti þangað en ákvað að sleppa ballinu.  Þetta var hið besta ball og hitti maður fjöldan allan að fólki og marga hverja sem maður hittir varla nema á þessu balli. Vinnufélagar mínir Hrafnhildur,Pétur ,Sunna og Hrönn voru þarna í feikna góðum gír  og áttum við ansi fjörugar umræður og það slagaði bara um í eina vakt mætingin, en Hrafnhildur ef að það fer eitthvað að klikka í hjúkruninni sem ég efa reyndar stórlega þá mæli ég með að þú farir út í blómarækt tíhí en svona til nánari útskýringa varð blómapottur á vegi okkar Hrafnhildar á einni ferðinni út hann var sko bara fyrir en ég meina hverjum dettur líka í hug að planta blómapotti á stétt  fyrir utan ball stað.  En Hrafnhildur var ekki lengi að hjúkra blóminu í pottinn sinn og Pétur loforðið sem skóna stendur.

Á mánudeginum var örlítið þynnka í gangi og því var ósköp gott að kúra undir sæng með dvd í tölvunni fram eftir degi en svo var það vinnan sem kallaði.

Á þriðjudeginum brunaði ég í bæinn og ég,Elfa og Edda skelltum okkur í bæinn, á miðvikudeginum var svo farið í smá verslunarleiðangur ogsvo brunað út á völl til að sækja Kristínu, það var bara gott að fá litla skottið heim aftur.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband