Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Á næturvakt og þá er bloggað!

Já það er eins og blogg andinn vakni bara á næturvöktum, kanski bara besti tíminn þá.  Enda sofa allir dollarnir mínir vært og róttSmile

En það er nú liðið eitthvað eins og c.a 2 vikur frá síðasta bloggi og ýmislegt gerst síðan þá þó svo að ég ætí nú ekki að fara rekja það í smáatriðum.

En páskarnir eru nýbúnir og voru bara fínir.  Á skírdag var ég á morgunvakt og síðan borðuðum við  mæðgur hjá Lillu frænku.  Þar voru líka Fríða Björg og afmælisbarnið Kiddi frændi.  Kristín Björg var hjá Lillu og Fríðu meðan ég var að vinna og Lilla sagði að það hefði verið skondið að hún hefði nú ekki viljað leggja sig þó að hún hefði verið pínu þreytt og fór að horfa á barnatíman svo var henni litið inn í herbergjið Lillu og kom furðlostinn til Lillu og sagði Lilla komdu og sjáðu það er sko kona sofandi í rúminu þínu, já ég veit það er Fríða Björg sagði Lilla nei hei það er sko fullorðin kona svaraði Kristín þá.  Lilla sagði að svipurinn á henni hafi verið alveg óborganlegur.

Á föstudaginn sváfum við svo út, úff hvað það var notalegt en brunuðum svo rétt um hádegi til Akureyrar og hittum Bllu frænku og co og fórum svo í heimsókn til Deddu frænku  en það var á páska planinu að ná að renna norður til hennar.  Þegar við komum til baka fórum við svo á Ólafshús og hittum Ásdísi,Guðrúnu,Stínu,Guðnýju og svo voru allir krakkagemlingarnir líka.  Hittum Eddu og Steina þar og kíktum svo til þeirra.  Laugardagsmorgunin fór svo í ritgerð, síðan rétt fyrir 2 fórum við út í kirkju en það var verið að skíra litla prinsinn Öllu og Óskars og fékk hann nafnir Steinn Gunnar, Alla átti líka 30 ára afmæli þann dag. Til hamingju með daginn öll sömul.  Það var svo skírnar og afmælisveisla.

Laugardagskvöldið var svo bara rólegt heima og vann í ritgerðinni ,já ég veit að ég sagði í síðasta bloggi að ég ætlaði ekki að ´gera ritgerð alla páskanna enda gerði það heldur ekki.  En var í henni fram á miðjan sunnudag og fór svo í sveitina.  Fékk góðan frið þar sem prinsessan lék sér og var hæstánægð maulandi páskaegg.

Á sunnudagskvöldið borðuðum við svo hjá mömmu og pabba og Jói Og Eva komu líka og fengum þetta fyrirtaks svínakjöt að borða.  Svo var bara vinna á mánudag en skelltum okkur svo í sund með Öllu,Þorgrími, Guðbjörgu og Hrafnhildi.

Annars er ekkert fréttnæmt, nóg að gera í vinnunni og skólanum, er að halda áfram með næstu ritgerð sem er reyndar  aðeins styttri en svo er annarpróf  í hjúkrunarfræðinni núna um helgina þannig að það er nóg að gera.  

Þar til næst

Wink


Næturvaktarblogg!

Já fékk skot um daginn að ég hefði verið á næturvakt og ekkert bloggað, best að láta það ekki gerast aftur.  En ef við höldum áfram frá síðasta bloggi hefur prófið líklega bara verið stóra áskorunin allavega sigraðist ég á því og náði því og komst alveg sæmilega heil á geðsmunum frá því og ótrulega góð tilhugsun að þurfa ekki að lesa þetta efni til prófs í vor.  Dóttir mín var reyndar svo elskuleg að gefa mér hjartalagaðan perludúk rétt áður en ég fór í prófið og sagði mér að taka hann með inn í prófið og þá mundi mér ganga rosa vel svona lukkugripur kanski hann hafi bara virkað.

En ritgerðasmíðin gengur ekkert hratt og verð ég að fara spýta í lófana því ég ætla helst ekki að eyða öllu páskafríinu í þetta en páskarnir nálgast vist ansi hratt.  Vísindaferðin í borgina gekk bara vel og skoðuðum við heilan heilling fórum á Landakot, bráðamótttökuna í Fossvogi, barnaspítalan, Reykjalund, Eirberg og Hrafnistu.  Þannig að það var nóg að gera. 

Þetta var samt mjög fróðleg og skemmtileg ferð og gaman að hitta loksins kennara og nemendur  sem maður er búin að vera með í faginu en sjá aldrei.

Eftir skoðunarferðina á miðvikudeginum fór ég svo að sækja Kristínu en hún var hjá Dagnýju,Guðmanni,Viktoríu og Antoni Orra á meðan, og var mikið stuð á skvísunum.  við  fórum svo í sund með Eddu og Elfu og þar var alveg snilldartæki sem ætti að vera til í öllum sundlaugum en þetta tæki vindur sundboli algjör snilld.  Okkur var svo boðið í mat hjá Eddu og var Steini búin að elda þennan fína kjúlla.  Á fimmtudeginum var Krístín Hjá Hafrúnu og hennar prinsum og ég hitti þau svo í smaralindinni þegar ég var búin þar sem Bent og Kristín höfðu fengið að fara í ævintýraland og þar var mikil gleði.  Hittum avo Ásdísi og Sunnu og Elfu.  Ég, Kristín Björg og Elfa fórum svo til Stínu og Önju og þar var líka Hafdís sem sínar stelpur þannig að þap var mikið stuð. 

Á föstudeginum skrapp ég svo í Ikea og í kringluna með Sóleyju Stínu og Önju og var meðal annars að skoða rúm þar sem ég þarf virkilega að fara kaupa mér nýtt rúm já eða allavea nýja dýnu en ég komst nú samt ekki að neinni niðurstöðu hvað ég vill fyrir utanað vita að maður vill gott rúm fyir sem minnstan penning.  Laugardagurinn fór í slæping sváfum út og vorum að slæpast hjá Þorleifi og Guðnýju, fórum svo aðeins i bæjarstúss og enduðum svo að taka´dót hjá  Eddu sem átti að fara norður og fengum vöfflur og kakó, fór seinna á stað en ég ætlaði sem var svo sem ágætt þar sem að þá var hríðin á Holtavörðuheiðinni hætt og bara blíða en það haf'i verið hríð fyrr um daginn.

maður komst nátturlega ekki yfir að hitta alla já bara eins og ég var búin að spá fyrir um.

Í dag fór ég svo á Skilaboðaskjóðuna með Kristinu, Þorgrími og Öllu og var bara mjög gaman. 

Kriatín lifði sig mikið inn í verkið á parti og var ansi gaman að fylgjast með henni. 

 Svo er nátturlega allt komið á fullan skrið hjá Leikfélaginu í villtu finna miljón?? þannig að nú er um að gera fyrir alla að drífa dig í leikhús í sæluvikunni.

En læt þetta nægja í bili

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband