Spannandi HM

Já leikurinn áðan var svo sannarlega spennandi en samt erfiður og var ég hreinlega að missa mig síðustu mínoturnar en góð úrslit að lokum og ég gat horft á hann því að hún Ingiríður snillingur var með kveikt á vefmyndavélini fyrir framan imbann heima hjá sér, enginn brjáluð gæði en samt miklu betra heldur en að hlusta bara en svo hlustaði ég á rás 2 með til að fá hljóðið.  Reyndar var það svolítið fyndið og smá ruglandi að útsendingin á rás 2 var aðeins á eftir hehe en bara gaman af því.

TAKK FYRIR INGIRÍÐUR, ÞÚ ERT SKO BEST.

Þórunn mákona,Steinar,Einar og Emmi  voru á leiknum og ég get nú bara ýmyndað mér stuðið og stemminguna sem hefur verið hjá þeim, það er jú alltaf best að fá þetta svona beint í æð en Þórunn sagði einmitt eftir tapið á pólverjum að hún væri sko lukkudýr og þeir mynda vinna á laugardag (í dag ) og það bara gekk eftir , Steinar var aftur á móti líka á leiknum gegn pólverjum þannig að hann er nú bara 50 % lukkudýr hehe

Svo er bara að berjast áfram.

Svo er ég líka búinn að vera skoða á netinu í sambandi við evrópumótið sem er í jan 2008 i Noregi og það er aldrei að vita nema að maður renni bara til Noregs, ja allavega skoða það ef að 'Island kemst þangað en til þess verða þeir að vinna Serba i sumar en það er best að leyfa þeim að klára HM og vonandi gengur þeim bara áfram vel og vinna á morgun.

Áfram Ísland!!!!!!!

allavega verð ég límt við tölvuna og í tæknilegu sambandi við hana INGIRÍÐI MÍNA og Rás 2

Handbolta kveðjur Lulla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

verði þer að þvi leikurin er á morgun lika í beini :)  HAHAHAHAH...

Ingiríður (IP-tala skráð) 27.1.2007 kl. 20:22

2 Smámynd: þórunn þorleifsdóttir

Jú þetta var sko sannarlega 12 tíma keyrslu virði að fara þetta og þvílík stemmning fyrir og eftir leik og maður var sko sannarlega stolltur íslendingur þarna, he he he, það var bara verst að ég fór ekki á leik Þýskara til að vera lukkdýrið þar líka, he he he. Það væri nú gaman að skella sér til Hamborg á morgun á leik Dana og fara svo í vinnuna og monnta mig einsog þeir gera ef þeir vinna okkur!!!! En sjáum til hvernig fer.

Þórunn.

þórunn þorleifsdóttir, 29.1.2007 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband